
Tegund verks: Inniverk / nýbyggingar
Fjöldi íbúða: 46
Staður: Hringhamrar 35-37, Hafnarfirði
Verkaðili: Dverghamrar
Ár: 2023
Gæðamálverk tók að sér umfangmikið verkefni árið 2023. Það fólst í því að fullmála 46 íbúðir í nýbyggingu, þ.e. sandspörslun, slípun, málun og lokamálun. Verkefnið var eitt stærsta nýbyggingarverk fyrirtækisins á árinu og gekk vel. Mikil ánægja ríkti bæði hjá byggingarfélaginu Dverghömrum og okkur hjá Gæðamálverki. Aðstandendur voru ánægðir með samstarfið.
Fyrir neðan má sjá Gísla Val Eggertsson, eiganda og framkvæmdastjóra Gæðamálverks, mála bílakjallarann í Hringhömrum.
Gísli beitti málunaraðferð sem kallast sprautun sem felur í sér úðun málningar. Hún þykir skilvirk, sérstaklega þegar um er að ræða stóra fleti eins og loft. Auk þess er sprautun hagnýt leið og dregur úr notkun málningar sem þarf til verksins.